Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Altarissakramentið

Altarissakramentið

Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.

Hvað er altarissakramentið?

Það er hinn sanni líkami og blóð Drottins okkar Jesú Krists undir brauðinu og víninu, handa okkur hinum kristnu til að eta og drekka, stofnsett af Kristi sjálfum.

Hvar stendur það skrifað?

Þannig skrifa hinir heilögu guðspjallamenn, Matteus, Markús og Lúkas og Páll postuli:

Nóttina sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf lærisveinum sínum og sagði: „Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.“

Sömuleiðis eftir kvöldmáltíðina tók hann bikarinn, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: „Drekkið allir hér af. Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt til fyrirgefningar syndanna. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.“ (MATT 26:26-28, MARK 14:22-24, LÚK 22:19-20, 1 KOR 11:23-25)

Hvað gagn er í því að eta og drekka þannig?

Það sýna þessi orð: „fyrir yður gefinn“ og „fyrir yður úthellt til fyrirgefningar syndanna.“ Með þessum orðum er okkur nefnilega veitt fyrirgefning syndanna, líf og sáluhjálp í sakramentinu. Því þar sem fyrirgefning syndanna er, þar er einnig líf og sáluhjálp.

Hvernig getur það að eta og drekka líkamlega gert svo mikið?

Það er vissulega ekki það að eta og drekka sem gerir það, heldur orðin sem þar standa: „fyrir yður gefinn“ og „fyrir yður úthellt til fyrirgefningar syndanna.“ Því þessi orð eru, ásamt því að eta og drekka líkamlega, höfuðatriðið í sakramentinu. Hverjum þeim sem trúir þessum orðum, veitist nákvæmlega það sem þau segja, það er, fyrirgefningu syndanna.

Hver tekur þá við sakramentinu verðuglega?

Fasta og líkamlegur undirbúningur er vissulega góður siður, en sá er réttilega verðugur og vel hæfur sem trúir þessum orðum: „fyrir yður gefinn“ og „fyrir yður úthellt til fyrirgefningar syndanna.“

Hver sem ekki trúir þessum orðum eða efast um þau, hann er óverðugur og óhæfur, því að orðið: „Fyrir yður“ krefst algerlega trúaðra hjartna.