Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Skírn

Skírn

Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.

Í fyrsta lagi:

Hvað er skírnin?

Skírnin er ekki eingöngu venjulegt vatn, heldur er hún vatnið umvafið boði Guðs og samtengt orði Guðs.

Hvert er þá slíkt Guðs orð?

Það sem Drottinn okkar Kristur segir í lok Matteusarguðspjalls: „Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni Föður, Sonar og Heilags Anda“ (MATT 28:19)

Í öðru lagi:

Hvað gefur skírnin eða hvaða gagn er í henni?

Skírnin veldur fyrirgefningu syndanna, frelsar frá dauða og djöfli og veitir eilífa sáluhjálp öllum, sem trúa því, eins og orð Guðs og fyrirheit hljóða.

Hver eru slík orð Guðs og fyrirheit?

Þau sem Drottinn okkar Kristur segir í lok Markúsarguðspjalls: „Sá sem trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki, mun fyrirdæmdur verða“ (MARK 16:16)

Í þriðja lagi:

Hvernig getur vatn gert svo mikið?

Það er vissulega ekki vatnið sem gerir það, heldur er það orð Guðs, sem er með og hjá vatninu, og trúin sem treystir slíku orði Guðs í vatninu. Því að án orðs Guðs væri það einungis venjulegt vatn og engin skírn, en með orði Guðs er það skírn, það er: Náðarríkt lífsins vatn og laug nýrrar fæðingar í heilögum anda, eins og Páll postuli segir í bréfinu til Títusar í 3. kafla:

„þá frelsaði hann oss, ekki vegna réttlætisverkanna, sem vér höfðum unnið, heldur samkvæmt miskunn sinni í þeirri laug, þar sem vér endurfæðumst og heilagur andi gjörir oss nýja. Hann úthellti Anda sínum yfir oss ríkulega fyrir Jesú Krist, frelsara vorn, til þess að vér, réttlættir fyrir náð hans, yrðum í voninni erfingjar eilífs lífs.“ (TÍT 3:5–7)

Það er vissulega satt.

Í fjórða lagi:

Hvað merkir þá slík vatnsskírn?

Hún merkir það, að hinn gamli Adam í okkur á að drekkjast með daglegri iðrun og yfirbót og deyja með öllum syndum og vondum girndum. Í staðinn á nýr maður daglega að koma fram og rísa upp. Hann lifir að eilífu í réttlæti og hreinleika fyrir Guði.

Hvar stendur það skrifað?

Páll postuli segir í bréfinu til Rómverja, 6. kafla:

„Vér erum því dánir og greftraðir með honum í skírninni, til þess að lifa nýju lífi, eins og Kristur var upp vakinn frá dauðum fyrir dýrð Föðurins.“ (RÓM 6:4)