Morgun- og kvöldbæn
Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu að biðjast fyrir á morgnana og á kvöldin
Morgunbæn
Á morgnana, þegar þú ferð á fætur, áttu að signa þig með hinu heilaga krossmarki og segja:
Í nafni Guðs, Föður og Sonar og Heilags Anda. Amen.
Því næst ferðu með trúarjátninguna og Bæn Drottins krjúpandi eða standandi. Ef þú vilt, getur þú bætt við þessari litlu bæn:
Ég þakka þér, himneski Faðir minn,
fyrir elskaðan son þinn, Jesú Krist,
að þú hefur varðveitt mig
frá öllu tjóni og hættu í nótt.
Ég bið þig einnig í dag
að vernda mig frá synd og öllu illu,
svo að allt mitt líf og starf þóknist þér.
Ég fel mig, líkama minn og sálu,
og alla hluti í hendur þínar.
Heilagur engill þinn veri hjá mér,
svo að óvinurinn illi nái engu valdi yfir mér. Amen.
Gakktu svo með gleði til iðju þinnar, og syngdu líka vers, t.d. um boðorðin tíu, eða eitthvað sem guðrækni þín blæs þér í brjóst.
Kvöldbæn
Á kvöldin, þegar þú ferð að sofa, áttu að signa þig með hinu heilaga krossmarki og segja:
Í nafni Guðs, Föður og Sonar og Heilags Anda. Amen.
Því næst ferðu með Trúarjátninguna og Bæn Drottins krjúpandi eða standandi. Ef þú vilt, getur þú bætt við þessari litlu bæn:
Ég þakka þér, himneski Faðir minn,
fyrir elskaðan son þinn, Jesú Krist,
að þú hefur náðarsamlega varðveitt mig í dag.
Ég bið þig að fyrirgefa mér allar syndir mínar,
þar sem ég hef ranglega breytt,
og varðveita mig náðarsamlega í nótt.
Ég fel mig, líkama minn og sálu
og alla hluti í hendur þínar.
Heilagur engill þinn veri hjá mér,
svo að óvinurinn illi nái engu valdi yfir mér. Amen.
Og síðan gengurðu tafarlaust og með gleði til svefns.
Bænir á undan og eftir máltíð, á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.
Borðbæn á undan máltíð
Börn og heimilisfólk eiga að ganga að borðinu hógværlega, með spenntar greipar og segja:
Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma. Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun. (SÁLM 145:15–16)
Stutt skýring: Blessun merkir, að allar skepnur fái svo mikla fæðu, að þær séu glaðar og ánægðar af því, því að áhyggjur og ágirnd eru slíkri blessun til fyrirstöðu.
_ Því næst fara þau með Bæn Drottins og eftirfarandi bæn:_
Drottinn Guð, himneski faðir. Blessa þú oss og þessar gjafir þínar sem vér þiggjum af mildri miskunn þinni, fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Amen.
Þakkarbæn eftir máltíð
Sömuleiðis, einnig eftir máltíðina, eiga þau með sama hætti og með spenntum greipum, að segja hógværlega:
Þakkið Drottni, því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
[Hann] gefur fæðu öllu holdi.
Hann gefur skepnunum fóður þeirra,
hrafnsungunum, þegar þeir kalla.
Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins,
eigi þóknun á fótleggjum mannsins.
Drottinn hefir þóknun á þeim er óttast hann,
þeim er bíða miskunnar hans.
(SÁLM 136:1, 25; 147:9–11)
Því næst fara þau með Bæn Drottins og eftirfarandi bæn:
Við þökkum þér Drottinn, Guð Faðir, fyrir Jesú Krist Drottin vorn, fyrir allar velgerðir þínar. Þú sem lifir og ríkir að eilífu. Amen.