Fræðin minni

Eftir Martein Lúther
Veldu tungumál Um Fræðin minni

Skriftir

Skriftir

Hvað eru skriftir?

Skriftir fela í sér tvö atriði: Annað er, að játa syndina, hitt er, að taka við aflausninni eða fyrirgefningunni frá skriftaföðurnum sem af Guði sjálfum væri, og efast svo ekki um þetta, heldur trúa því og treysta, að syndirnar séu með því fyrirgefnar hjá Guði á himnum.

Hvaða syndir ber manni þá að játa?

Frammi fyrir Guði eigum við að játa okkur sek af öllum syndum, einnig þeim, sem við vitum ekki um, eins og við gerum í bæn Drottins. Fyrir skriftaföðurnum eigum við einungis að játa þær syndir sem við vitum um og finnum til í hjartanu.

Hverjar eru þær?

Líttu á stöðu þína með boðorðin tíu í huga, hvort sem þú ert faðir, móðir, sonur, dóttir, yfirmaður eða starfsmaður. Hefur þú verið óhlýðinn, óáreiðanlegur, latur eða gert nokkrum rangt til í orði eða verki? Hefur þú stolið, vanrækt, verið kærulaus eða valdið tjóni?

Einfaldar leiðbeiningar um að skrifta

Þannig átt þú að segja við skriftaföðurinn:

Virðulegi skriftafaðir, ég bið þig að hlusta á játningu mína og boða mér fyrirgefningu syndanna, samkvæmt vilja Guðs.

Ég aumur syndari, játa mig sekan fyrir Guði í öllum syndum. Sérstaklega játa ég fyrir þér, að ég er starfsmaður, en því miður þjóna ég yfirmönnum mínum af ótrúmennsku, því stundum hef ég ekki gert það sem átti að gera. Ég hef móðgað þá og komið þeim til að bölva, hef sýnt vanrækslu og látið þá verða fyrir tjóni. Ég hef þar að auki sýnt ósvífni í orði og verki, rifist við jafningja mína, kvartað undan og bölvað húsmóður minni og fleira þessu líkt. Allt þetta þykir mér leitt. Ég bið um náð og vil bæta mig.

Fjölskyldufaðir, húsmóðir og yfirmenn geta sagt:

Sérstaklega játa ég fyrir þér, að ég hef ekki leitt börn mín, maka, heimilisfólk eða starfsfólk með trúmennsku, Guði til dýrðar. Ég hef bölvað, verið öðrum slæmt fordæmi með ósiðlegum orðum og verkum, gert nágranna mínum skaða og talað illa um hann. Ég hef selt of dýrt og látið af hendi sviknar og ónógar vörur.

Annars sérhvað annað, sem þau hafa brotið gegn boðorðum Guðs og stöðu sinni.

Ef einhver kannast ekki við að hafa drýgt slíkar eða stærri syndir, þá þarf hann ekki að gera sér erfiði við að leita lengra eftir öðrum syndum, eða finna þær upp, og þar með gera skriftirnar að kvöl. Þess í stað skaltu nefna eina eða tvær syndir sem þú veist um, til dæmis:

Sérstaklega játa ég, að ég hef einu sinni bölvað, eða talað ósæmilega, einu sinni sýnt vanrækslu í einhverju, og svo framvegis.

Láttu það duga.

Vitir þú ekki um neina synd, sem þó varla er mögulegt, skaltu heldur ekki nefna neitt sérstaklega, heldur taka við fyrirgefningunni upp á almenna syndajátningu, sem þú hefur gert fyrir Guði, í áheyrn skriftarföður.

Við þessu á skriftafaðirinn svo að segja:

Guð sé þér náðugur og styrki trú þína. Amen.

Ennfremur:

Trúir þú, að fyrirgefning mín sé fyrirgefning Guðs?

Svar: Já!

Við því segir hann:

Verði þér svo sem þú trúir! Eftir skipun Drottins vors Jesú Krists fyrirgef ég þér syndir þínar í nafni Guðs, Föður og Sonar og Heilags Anda. Amen. Far burt í friði!

En þá sem finna til þungrar sektar í samvisku sinni eða eru hryggir og hugsjúkir, verður skriftafaðirinn að geta huggað með ýmsum ritningargreinum og laðað til trúarinnar.

Þessu er einungis ætlað að vera almennt form skrifta fyrir óreynda.