Bæn Drottins
Á þann einfalda hátt sem fjölskyldufaðirinn á að kenna heimilisfólki sínu.
Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn. Til komi þitt ríki. Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Og eigi leið þú oss í freistni. Heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.
Ávarpið
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Hvað er það? Með þessum orðum hvetur Guð okkur til að trúa því, að hann sé sannur faðir okkar og við sönn börn hans, til þess að við getum beðið til hans, örugg og með fullu trausti, rétt eins og góð börn biðja góðan föður sinn.
Fyrsta bæn
Helgist þitt nafn.
Hvað er það? Guðs nafn er vissulega heilagt í sjálfu sér, en við biðjum í þessari bæn, að það verði heilagt einnig hjá okkur.
Hvernig verður það? Þegar orð Guðs er kennt rétt og hreint, og við lifum líka helguðu lífi samkvæmt því, sem börn Guðs. — Hjálpaðu okkur til þess, góði Faðir á himnum. — En hver sá sem kennir og lifir öðruvísi en orð Guðs boðar, sá vanhelgar nafn Guðs á meðal okkar — Varðveittu okkur frá því, himneski Faðir.
Önnur bæn
Til komi þitt ríki.
Hvað er það? Guðs ríki kemur vissulega af sjálfu sér, án bænar okkar, en við biðjum í þessari bæn, að það komi einnig til okkar.
Hvernig verður það? Þegar himneskur Faðir okkar gefur okkur Heilagan anda sinn, svo að við, fyrir náð hans, trúum heilögu orði hans og lifum Guði þóknanlegu lífi, hér í okkar tíma og síðan í eilífð Guðs.
Þriðja bæn
Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Hvað er það? Vissulega verður Guðs góði og náðugi vilji án bænar okkar, en við biðjum í þessari bæn, að hann verði einnig hjá okkur.
Hvernig verður það? Þegar Guð hindrar og stöðvar öll ill ráð og áform, sem vilja koma í veg fyrir að við helgum nafn Guðs og að ríki hans komi — en það er vilji djöfulsins, heimsins og okkar eigin holds — en styrkir okkur og heldur okkur staðföstum í orði sínu og trúnni, allt til æviloka.
Það er hans náðugi, góði vilji.
Fjórða bæn
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Hvað er það? Guð gefur vissulega daglegt brauð, einnig án bænar okkar, jafnvel öllum vondum mönnum, en við biðjum í þessari bæn, að hann láti okkur kannast við það og þiggja daglegt brauð okkar með þakklæti.
Hvað er þá nefnt daglegt brauð? Allt sem tengist næringu og þörfum líkamans, svo sem
matur, drykkur,
fatnaður, skór,
hús, heimili,
akur, fénaður,
peningar, fjármunir,
guðhræddur maki,
guðhrædd börn,
guðhrætt heimilisfólk,
guðhræddir og trúir yfirmenn,
góð landstjórn,
góð veðrátta,
friður, heilbrigði,
siðsemi, heiður,
góðir vinir, trúir nágrannar og annað þessu líkt.
Fimmta bæn
Og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Hvað er það? Við biðjum í þessari bæn, að Faðir okkar á himnum líti ekki á synd okkar, eða neiti okkur um bænheyrslu hennar vegna. Við erum ekki verðug þess sem við biðum um, og höfum ekki verðskuldað það, heldur biðjum við Hann að gefa okkur allt af náð, þótt við syndgum mikið á hverjum degi og verðskuldum einbera hegningu. Því viljum við einnig fyrirgefa af hjarta og fúslega gera gott, þeim sem syndga gegn okkur.
Sjötta bæn
Og eigi leið þú oss í freistni.
Hvað er það? Guð freistar okkar vissulega ekki, en við biðjum í þessari bæn, að Guð vilji vernda og varðveita okkur, svo að djöfullinn, heimurinn og okkar eigið hold hvorki svíki okkur né tæli til vantrúar, örvæntingar eða annarrar stórrar svívirðingar og lasta. Þótt við freistumst af þessu, biðjum við þess að við megum sigrast á því að lokum, og halda sigrinum.
Sjöunda bæn
Heldur frelsa oss frá illu.
Hvað er það? Við biðjum í þessari bæn, í stuttu máli, að Faðir okkar á himnum frelsi okkur frá öllum meinum á líkama og sálu, eignum og heiðri, og að lokum, þegar okkar lokastund rennur upp, að hann veiti okkur sæl ævilok, og taki okkur í náð, úr þessum táradal til sín í himininn.
Niðurlag
[Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu.] Amen.
Hvað er það? Ég get veið viss um að Faðir okkar á himnum heyri slíkar bænir, og að þær séu honum þóknanlegar, því hann hefur sjálfur boðið okkur að biðja þannig og heitið okkur bænheyrslu sinni. Amen, amen, það þýðir: Já, já, svo skal verða.